Kjarasamninganefnd

8. fundur 27. september 2017 kl. 08:30 - 09:30 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Gunnar Gíslason
Starfsmenn
  • Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Dagskrá

1.Umhverfis- og mannvirkjasvið - sameiningarferli

Málsnúmer 2017010126Vakta málsnúmer

Umfjöllun um nýtt starf stjórnanda á umhverfis- og mannvirkjasviði.
Kjarasamninganefnd leggur til við bæjaráð að nýtt starf stjórnanda á umhverfis- og mannvirkjasviði verði skilgreint sem forstöðumannsstarf. Lagt er til að greitt verði stjórnendaálag vegna starfs forstöðumanns umhverfis- og sorpmála samkvæmt reglum Akureyrarbæjar um greiðslu stjórnendaálags forstöðumanna.

2.Reglur um starfskjör

Málsnúmer 2017090170Vakta málsnúmer

Umfjöllun um endurskoðun á grein 3.a. í núgildandi Reglum um starfskjör æðslu stjórnenda Akureyrarkaupstaðar.
Kjarasamninganefnd leggur til við bæjarstjóra að frá júní 2016 hætti laun æðstu stjórnenda Akureyrarkaupstaðar að taka mið af almennum úrskurðum kjararáðs ríkisins og í grein 3.a. verði kveðið á um að laun taki mið af breytingum á launavísitölu.

Fundi slitið - kl. 09:30.