Íþróttaráð

192. fundur 24. maí 2016 kl. 15:00 - 16:15 Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Árni Óðinsson
  • Áshildur Hlín Valtýsdóttir
  • Guðrún Þórsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Sigríður Stefánsdóttir framkvæmdastjóri samfélags- og mannréttindadeildar
  • Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála ritaði fundargerð
Dagskrá
Birna Baldursdóttir L-lista var fjarverandi vegna veikinda og varamaður hennar boðaði forföll.
Þórunn Sif Harðardóttir D-lista boðaði forföll sem og varamaður hennar.
Áshildur Hlín Valtýrsdóttir Æ-lista mætti í fjarveru Jónasar Björgvins Sigurbergssonar.

1.Fjárhagsáætlun 2016 - íþróttaráð

Málsnúmer 2015080072Vakta málsnúmer

Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri, Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður bæjarráðs, Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri og Magnús Kristjánsson ráðgjafi hjá KPMG mættu fyrir hönd aðgerðarhóps bæjarstjórnar til fundarins og kynntu tillögur hópsins er varða málefni íþróttaráðs sem voru samþykktar í bæjarráði 19. maí 2016. Guðmundur Karl Jónsson forstöðumaður Hlíðarfjalls, Elín H. Gísladóttir forstöðumaður Sundlaugar Akureyrar og Aðalsteinn Sigurgeirsson forstöðumaður íþróttahúsa sátu einnig fundinn.

Fundi slitið - kl. 16:15.