Fræðsluráð

22. fundur 16. desember 2019 kl. 13:30 - 15:30 Fundarsalur 1. hæð Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Þorlákur Axel Jónsson
  • Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir
  • Rósa Njálsdóttir
  • Þórhallur Harðarson
  • Þuríður Sólveig Árnadóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrardeildar
  • Anna Lilja Sævarsdóttir fulltrúi leikskólastjóra
  • Atli Þór Ragnarsson fulltrúi foreldra leikskólabarna
  • Eyrún Halla Skúladóttir fulltrúi skólastjóra
  • Hildur Lilja Jónsdóttir fulltrúi ungmennaráðs
  • Jóhann Gunnarsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna
  • María Aðalsteinsdóttir fulltrúi grunnskólakennara
  • María Aldís Sverrisdóttir varamaður fulltrúa leikskólakennara
  • Erna Rós Ingvarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs
Dagskrá

1.Skóladagatal leik- og grunnskóla 2020-2021

Málsnúmer 2019110483Vakta málsnúmer

Í verklagsreglum fræðsluráðs Akureyrarbæjar segir að ákveða skuli í janúar ár hvert fyrir komandi skólaár:

1. Skólasetningardag allra grunnskóla

2. Sameiginlega leyfisdaga allra grunnskóla

Þar sem kjarasamningur Félags grunnskólakennara (gr. 10.1.1) kveður á um að leggja skuli fram drög að starfsþróunaráætlun fyrir 1. janúar vegna næsta skólaárs þarf fræðsluráð að afgreiða málið núna.



Tillaga grunnskólastjóra er þessi:

- skólasetning 24. ágúst

- haustfrí 22. og 23 október

- starfsdagur á öskudegi 17. febrúar

- vetrarfrí 18. og 19. febrúar

Fræðsluráð staðfestir tillögur grunnskólastjórenda að skóladagatali grunnskóla skólaárið 2020-2021.





2.PISA 2018

Málsnúmer 2019120120Vakta málsnúmer

Niðurstöður PISA rannsóknarinnar 2018 lagðar fram til kynningar og umræðu.
Fræðsluráð óskar eftir því við Menntamálastofnun að veita upplýsingar um niðurstöður Akureyrarbæjar í PISA könnun 2018. Ráðið telur mikilvægt að fá þessar upplýsingar svo hægt sé að nýta þær til umbóta í skólastarfi.

3.Skólavogin 2019

Málsnúmer 2019120121Vakta málsnúmer

Niðurstöður úr Skólavoginni fyrir árið 2019 lagðar fram til kynningar og umræðu.

Fundi slitið - kl. 15:30.