Skóladagatal leik- og grunnskóla 2020-2021

Málsnúmer 2019110483

Vakta málsnúmer

Fræðsluráð - 22. fundur - 16.12.2019

Í verklagsreglum fræðsluráðs Akureyrarbæjar segir að ákveða skuli í janúar ár hvert fyrir komandi skólaár:

1. Skólasetningardag allra grunnskóla

2. Sameiginlega leyfisdaga allra grunnskóla

Þar sem kjarasamningur Félags grunnskólakennara (gr. 10.1.1) kveður á um að leggja skuli fram drög að starfsþróunaráætlun fyrir 1. janúar vegna næsta skólaárs þarf fræðsluráð að afgreiða málið núna.



Tillaga grunnskólastjóra er þessi:

- skólasetning 24. ágúst

- haustfrí 22. og 23 október

- starfsdagur á öskudegi 17. febrúar

- vetrarfrí 18. og 19. febrúar

Fræðsluráð staðfestir tillögur grunnskólastjórenda að skóladagatali grunnskóla skólaárið 2020-2021.