Fræðslunefnd

2. fundur 02. apríl 2013 kl. 13:00 - 13:20 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Inga Þöll Þórgnýsdóttir formaður
  • Friðný Sigurðardóttir
  • Gunnar Frímannsson
  • Helga Hauksdóttir
  • Tómas Björn Hauksson
Starfsmenn
  • Ingunn Helga Bjarnadóttir fundarritari
Dagskrá

1.Námsstyrkjasjóður embættismanna - auglýsing og umsóknir 2013

Málsnúmer 2013020004Vakta málsnúmer

Farið yfir umsóknir í Námsstyrkjasjóð embættismanna.
Tvær umsóknir bárust um styrk úr sjóðnum, frá Guðríði Friðriksdóttur framkvæmdastjóra Fasteigna Akureyrarbæjar sem óskar eftir 12 mánaða leyfi og Guðrúnu Sigurðardóttur framkvæmdastjóra fjölskyldudeildar sem óskar eftir 4 mánaða leyfi. Báðir umsækjendur hafa langan starfsaldur hjá Akureyrarbæ: Guðríður 24 ár og Guðrún 29 ár.

Með vísan til 3. gr. Samþykktar um styrki til námsleyfa embættismanna Akureyrarbæjar samþykkir fræðslunefnd að veita Guðríði Friðriksdóttur styrk til 9 mánaða námsleyfis frá 1. september 2013. Við ákvörðun var litið til þess að Guðrún Sigurðardóttir hefur fengið styrk til 12 mánaða námsleyfis 2002-2003 samkvæmt reglum sjóðsins. Þess ber þó að geta að Guðríður Friðriksdóttir fékk 6 mánaða leyfi á launum frá september 1999, fyrir tíð sjóðsins.

Fundi slitið - kl. 13:20.