Námsstyrkjasjóður embættismanna - auglýsing 2013

Málsnúmer 2013020004

Vakta málsnúmer

Fræðslunefnd - 1. fundur - 07.02.2013

Farið yfir fjárhagsstöðu Námsstyrkjasjóðs embættismanna og tekin ákvörðun um hvort auglýst verði eftir umsóknum fyrir haustið 2013.

Samþykkt að auglýst verði eftir umsóknum í Námsstyrkjasjóð embættismanna með umsóknarfresti til 15. mars 2013.

Fræðslunefnd - 2. fundur - 02.04.2013

Farið yfir umsóknir í Námsstyrkjasjóð embættismanna.
Tvær umsóknir bárust um styrk úr sjóðnum, frá Guðríði Friðriksdóttur framkvæmdastjóra Fasteigna Akureyrarbæjar sem óskar eftir 12 mánaða leyfi og Guðrúnu Sigurðardóttur framkvæmdastjóra fjölskyldudeildar sem óskar eftir 4 mánaða leyfi. Báðir umsækjendur hafa langan starfsaldur hjá Akureyrarbæ: Guðríður 24 ár og Guðrún 29 ár.

Með vísan til 3. gr. Samþykktar um styrki til námsleyfa embættismanna Akureyrarbæjar samþykkir fræðslunefnd að veita Guðríði Friðriksdóttur styrk til 9 mánaða námsleyfis frá 1. september 2013. Við ákvörðun var litið til þess að Guðrún Sigurðardóttir hefur fengið styrk til 12 mánaða námsleyfis 2002-2003 samkvæmt reglum sjóðsins. Þess ber þó að geta að Guðríður Friðriksdóttir fékk 6 mánaða leyfi á launum frá september 1999, fyrir tíð sjóðsins.

Fræðslunefnd - 3. fundur - 22.05.2013

Námsstyrkjasjóður embættimanna. Fræðslunefnd þarf að ákveða hvenær auglýst verður næst eftir umsóknum í sjóðinn.

Fræðslunefnd samþykkir að auglýsa næst eftir umsóknum í Námsstyrkjasjóð embættismanna í nóvember 2013 fyrir skólaárið 2014-2015.