Fræðslunefnd

2. fundur 23. nóvember 2015 kl. 15:00 - 15:15 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Inga Þöll Þórgnýsdóttir formaður
  • Dagný Magnea Harðardóttir
  • Halldór Sigurður Guðmundsson
  • Karólína Gunnarsdóttir
  • Tómas Björn Hauksson
Starfsmenn
  • Ingunn Helga Bjarnadóttir fundarritari
Dagskrá

1.Námsstyrkjasjóður embættismanna - umsókn 2015

Málsnúmer 2015110146Vakta málsnúmer

Yfirferð umsókna í Námsstyrkjasjóð embættismanna.
Umsókn barst frá Höllu Margréti Tryggvadóttur starfsmannastjóra. Hún sækir um styrk til töku námsleyfis í níu mánuði sem hún óskar eftir að taka á árunum 2016 og 2017. Halla Margrét hefur starfað hjá Akureyrarbæ frá árinu 1997. Halla hefur í hyggju að
stunda nám í verkefnastjórnun, leiðtogaþjálfun og mannauðsstjórnun. Samþykki bæjarstjóra liggur fyrir.
Fræðslunefnd samþykkir að veita Höllu Margréti Tryggvadóttur námsstyrk til níu mánaða námsleyfis frá hausti 2016.

Fundi slitið - kl. 15:15.