Námsstyrkjasjóður embættismanna - umsókn 2015

Málsnúmer 2015110146

Vakta málsnúmer

Fræðslunefnd - 2. fundur - 23.11.2015

Yfirferð umsókna í Námsstyrkjasjóð embættismanna.
Umsókn barst frá Höllu Margréti Tryggvadóttur starfsmannastjóra. Hún sækir um styrk til töku námsleyfis í níu mánuði sem hún óskar eftir að taka á árunum 2016 og 2017. Halla Margrét hefur starfað hjá Akureyrarbæ frá árinu 1997. Halla hefur í hyggju að
stunda nám í verkefnastjórnun, leiðtogaþjálfun og mannauðsstjórnun. Samþykki bæjarstjóra liggur fyrir.
Fræðslunefnd samþykkir að veita Höllu Margréti Tryggvadóttur námsstyrk til níu mánaða námsleyfis frá hausti 2016.

Fræðslunefnd - 1. fundur - 13.05.2016

Erindi dagsett 28. apríl 2016 frá Höllu Margréti Tryggvadóttur starfsmannastjóra þar sem hún óskar eftir frestun á töku námsleyfis til haustsins 2017.
Fræðslunefnd samþykkir beiðni Höllu Margrétar.