Fræðslu- og lýðheilsuráð

50. fundur 08. apríl 2024 kl. 13:00 - 15:30 Rósenborg
Nefndarmenn
  • Heimir Örn Árnason formaður
  • Jón Þorvaldur Heiðarsson
  • Bjarney Sigurðardóttir
  • Gunnar Már Gunnarsson
  • Halla Birgisdóttir Ottesen
  • Ásrún Ýr Gestsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Rannveig Elíasdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri
  • Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála
  • Bjarki Ármann Oddsson forstöðumaður skrifstofu ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Bjarki Ármann Oddsson forstöðumaður skrifstofu
Dagskrá
Halla Birgisdóttir Ottesen F-lista sat fundinn í forföllum Tinnu Guðmundsdóttur.

1.Fræðslu- og lýðheilsuráð - heimsókn í tómstunda- og íþróttamannvirki

Málsnúmer 2022110690Vakta málsnúmer

Skoðunarferð um Sundlaug Akureyrar, Íþróttahúsið í Laugargötu og Rósenborg.

Elín H. Gísladóttir forstöðumaður Sundlauga Akureyrar og Alfa Aradóttir forstöðumaður forvarna- og frístundamála tóku á móti hópnum og sýndu og sögðu frá starfseminni.

Áheyrnarfulltrúar: Helga Björg Ingvadóttir fulltrúi ÍBA og Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð þakkar þeim Elínu og Ölfu fyrir kynninguna.

2.Endubætur á innisundlaug Sundlaugar Akureyrar

Málsnúmer 2024040192Vakta málsnúmer

Elín H. Gísladóttir forstöðumaður Sundlauga Akureyrar kynnti tillögur að breytingum á innisundlaug Sundlaugar Akureyrar.

Áheyrnarfulltrúar: Helga Björg Ingvadóttir fulltrúi ÍBA og Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.

3.Rósenborg

Málsnúmer 2024040170Vakta málsnúmer

Umræður um nýtingu Rósenborgar.


Alfa Aradóttir forstöðumaður forvarna- og frístundamála sat fundinn undir þessum lið.

Áheyrnarfulltrúi: Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.

4.Styrkir vegna sumaríþróttanámskeiða - reglur og verklag

Málsnúmer 2024040152Vakta málsnúmer

Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála lagði fram drög að reglum og verklagi vegna styrkveitinga til íþróttafélaga vegna sumaríþróttaskóla.

Áheyrnarfulltrúi: Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð samþykkir fyrirliggjandi drög að reglum og verklagi vegna styrkveitinga til íþróttafélaga vegna sumaríþróttaskóla.

5.Leiðakerfi strætisvagna, ferlibílar og frístundaakstur

Málsnúmer 2024010789Vakta málsnúmer

Liður 3 í fundargerð öldungaráðs dagsettri 19. mars 2024:

Lagt fram bréf frá stjórn Félags eldri borgara á Akureyri (EBAK) og fulltrúa EBAK í öldungaráði um frístundastrætó milli Birtu og Sölku.

Stjórn Félags eldri borgara á Akureyri (EBAK) og öldungaráð Akureyrarbæjar beina því til bæjaryfirvalda að komið verði á tilraunaverkefni með frístundastrætó milli Birtu og Sölku.

Frístundaferðir af þessu tagi hafa verið í umræðunni hjá EBAK í nokkur ár. Margir komast ekki inn í venjulega fólksflutningabíla (rútur) nema e.t.v. með aðstoð og ekki heldur inn í stærri einkabíla.

Margir fara milli félagsmiðstöðvanna í einkabílum en bílastæði eru mjög takmörkuð á báðum stöðum. Frístundastrætó ætti að fækka þeim ferðum og er í það takt við óskir bæjaryfirvalda um minni umferðarþunga á götunum og hlutfallslega fækkun ökutækja.

Oft þyrfti að hafa aukastrætisvagna á álagstímum og svo hefur frístundastrætó vegna íþróttaæfinga skólafólks verið í umræðunni um nokkra hríð. Þessar ferðir ættu því að bæta nýtingu þeirra vagna.

Áheyrnarfulltrúi: Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð vísar erindinu til umhverfis- og mannvirkjaráðs.

6.Rekstur fræðslu- og lýðheilsusviðs 2024

Málsnúmer 2024040161Vakta málsnúmer

Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri fór yfir rekstur fræðslu- og lýðheilsusviðs janúar - febrúar 2024.

Áheyrnarfulltrúi: Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.

7.Barnvænt sveitarfélag - gátlistar

Málsnúmer 2023091180Vakta málsnúmer

Lagt fram barnvænt hagsmunamat fundarins.

Áheyrnarfulltrúi: Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð vísar dagskrárliðum 2 og 3 til kynningar og umræðu hjá ungmennaráði Akureyrarbæjar.

Fundi slitið - kl. 15:30.