Bæjarstjórn

3480. fundur 06. október 2020 kl. 16:00 - 16:44 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir forseti bæjarstjórnar
  • Andri Teitsson
  • Hlynur Jóhannsson
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Heimir Haraldsson
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Gunnar Gíslason
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Þórhallur Jónsson
Starfsmenn
  • Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
  • Kristín Sóley Sigursveinsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristín Sóley Sigursveinsdóttir forstöðumaður upplýsinga- og þjónustudeildar
Dagskrá

1.Bæjarstjórn Akureyrarbæjar - breytingar í nefndum 2018-2022 - stjórn Akureyrarstofu

Málsnúmer 2018060500Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga S-lista um breytingu á skipan fulltrúa í stjórn Akureyrarstofu:

Arnar Þór Jóhannesson verði varafulltrúi í stað Sifjar Sigurðardóttur.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.

2.Bæjarstjórn Akureyrarbæjar - breytingar í nefndum 2018-2022 - stjórn Akureyrarstofu

Málsnúmer 2018060500Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga D-lista um breytingu á skipan fulltrúa í stjórn Akureyrarstofu:

Berglind Ósk Guðmundsdóttir verði aðalfulltrúi í stað Evu Hrundar Einarsdóttur.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.

3.Bæjarstjórn Akureyrarbæjar - breytingar í nefndum 2018-2022 - skipulagsráð

Málsnúmer 2018060500Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga D-lista um breytingu á formennsku í skipulagsráði:

Þórhallur Jónsson D-lista verði formaður í stað Guðmundar Baldvins Guðmundssonar B-lista.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.

4.Bæjarstjórn Akureyrarbæjar - breytingar í nefndum 2018-2022 - frístundaráð

Málsnúmer 2018060500Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga D-lista um breytingu á skipan fulltrúa í frístundaráði:

Eva Hrund Einarsdóttir verði aðalfulltrúi í stað Berglindar Óskar Guðmundsdóttur. Eva Hrund verði jafnframt formaður ráðsins í stað Önnu Hildar Guðmundsdóttur L-lista.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.

5.Bæjarstjórn Akureyrarbæjar - breytingar í nefndum 2018-2022 - umhverfis- og mannvirkjaráð

Málsnúmer 2018060500Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga B-lista um breytingu á skipan fulltrúa í umhverfis- og mannvirkjaráði:

Tryggvi Már Ingvarsson verði varafulltrúi í stað Ingibjargar Ólafar Isaksen.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.

6.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2020-2023 - viðauki

Málsnúmer 2019020276Vakta málsnúmer

Liður 2 í fundargerð bæjarráðs dagsettri 1. október 2020:

Lagður fram viðauki 14.

Kristín Baldvinsdóttir verkefnastjóri á fjársýslusviði sat fundinn undir þessum lið.

Bæjarráð samþykkir viðauka 14 með fimm samhljóða atkvæðum og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.

Guðmundur Baldvin Guðmundsson kynnti efni viðaukans.
Bæjarstjórn staðfestir ákvörðun bæjarráðs með 11 samhljóða atkvæðum.

7.Hlíðarfjall - gjaldskrá

Málsnúmer 2020090392Vakta málsnúmer

Liður 5 í fundargerð bæjarráðs dagsettri 17. september 2020:

Lögð fram tillaga stjórnar Hlíðarfjalls að gjaldskrá Hlíðarfjalls með gildistíma frá hausti 2020 til hausts 2021.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarráð samþykkir gjaldskrána með fimm samhljóða atkvæðum með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum og vísar henni til staðfestingar í bæjarstjórn.

Halla Björk Reynisdóttir kynnti gjaldskrártillöguna.
Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrána með 11 samhljóða atkvæðum með þeim breytingum að afsláttartímabil fyrir vetrar- og skólakort verði til nóvemberloka í stað októberloka. Jafnframt er afsláttur vegna lyftukorta sem samþykktur var í bæjarráði 28. maí 2020 framlengdur til nóvemberloka 2020.

8.Samstarfssáttmáli bæjarstjórnar Akureyrarbæjar 2020

Málsnúmer 2020090684Vakta málsnúmer

Umræða um nýja samstjórn og samstarfssáttmála bæjarstjórnar.

Halla Björk Reynisdóttir reifaði tildrög samstjórnarinnar og samstarfssáttmálans.

Í umræðum tóku til máls Gunnar Gíslason, Sóley Björk Stefánsdóttir og Hilda Jana Gísladóttir.

9.Fjárhagsstaða Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2020100035Vakta málsnúmer

Rætt um fjárhagsstöðu sveitarfélagsins eins og hún lítur út í dag.

Guðmundur Baldvin Guðmundsson fór yfir fjárhagsstöðu bæjarins. Auk hans tók Gunnar Gíslason til máls.

10.Skýrsla bæjarstjóra

Málsnúmer 2010090095Vakta málsnúmer

Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri fór yfir helstu atriði í störfum sínum frá síðasta fundi bæjarstjórnar.
Eftirtaldar fundargerðir eru lagðar fram til kynningar:

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa 11., 16. og 24. september 2020
Bæjarráð 17. september og 1. október 2020
Frístundaráð 30. september 2020
Fræðsluráð 21. september 2020
Skipulagsráð 23. september 2020
Stjórn Akureyrarstofu 17. september 2020
Umhverfis- og mannvirkjaráð 8., 11. og 18. september 2020
Velferðarráð 16. september 2020

Hægt er að nálgast fundargerðirnar á heimasíðu Akureyrarbæjar: https://www.akureyri.is/is/stjornkerfi/stjornsysla/fundargerdir

Fundi slitið - kl. 16:44.