Bæjarstjórn

3435. fundur 22. maí 2018 kl. 16:00 - 16:37 Hamrar í Hofi
Nefndarmenn
  • Matthías Rögnvaldsson forseti bæjarstjórnar
  • Dagbjört Elín Pálsdóttir
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Sigríður Huld Jónsdóttir
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Baldvin Valdemarsson
  • Edward Hákon Huijbens
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Gunnar Gíslason
  • Preben Jón Pétursson
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Kristín Sóley Sigursveinsdóttir forstöðumaður upplýsinga- og þjónustudeildar ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Kristín Sóley Sigursveinsdóttir forstöðumaður upplýsinga- og þjónustudeildar
Dagskrá
Edward Hákon Huijbens V-lista mætti í forföllum Sóleyjar Bjarkar Stefánsdóttur.

1.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2018 - viðauki

Málsnúmer 2017040095Vakta málsnúmer

8. liður í fundargerð bæjarráðs dagsett 17. maí 2018:

Lagður fram viðauki 7.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarráð samþykkir framlagðan viðauka 7 að upphæð 107,5 milljónir króna og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn staðfestir ákvörðun bæjarráðs með 11 samhljóða atkvæðum.

2.Klettaborg - umsókn um heimild til breytingar á deiliskipulagi

Málsnúmer 2017050078Vakta málsnúmer

10. liður í fundargerð skipulagsráðs dagsett 18. maí 2018:

Erindi dagsett 11. maí 2017 þar sem Þórir Guðmundsson fyrir hönd umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar, kt. 410169-6229, óskar eftir heimild til að breyta deiliskipulagi á leiksvæði við Klettaborg, sjá mynd. Fyrirhugað er að byggja sex þjónustuíbúðir fyrir fatlað fólk með mikla stuðningsþörf og sameiginlega aðstöðu fyrir íbúa og starfsfólk. Skipulagsráð heimilaði umsækjanda þann 31. maí 2017 að leggja fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi. Tillagan er dagsett 21. nóvember 2017 og unnin af Kollgátu.

Skipulagsráð leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að næstu nágrönnum verði tilkynnt um auglýsinguna.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsráðs með 11 samhljóða atkvæðum.

3.Bæjarstjórn áætlun um fundi

Málsnúmer 2017050158Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga um að næsti fundur bæjarstjórnar, þann 12. júní nk., sem jafnframt verður fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar, verði haldinn í Hömrum í Menningarhúsinu Hofi.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.

4.Skýrsla bæjarstjóra

Málsnúmer 2010090095Vakta málsnúmer

Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri fór yfir helstu atriði í störfum sínum frá síðasta fundi bæjarstjórnar. Jafnframt þakkaði bæjarstjóri bæjarfulltrúum og starfsfólki bæjarins fyrir samstarfið síðastliðin átta ár.
Í lok fundar mælti forseti svo:
Þar sem fundurinn í dag er væntanlega síðasti bæjarstjórnarfundur kjörtímabilsins þá vil ég þakka bæjarfulltrúum og starfsmönnum Akureyrarbæjar fyrir ánægjulegt samstarf á síðastliðnum fjórum árum. Hér sitja í dag nokkrir bæjarfulltrúar sem ekki gefa kost á sér til áframhaldandi setu í bæjarstjórn og vil ég sérstaklega óska þeim velfarnaðar í sínum störfum á öðrum vettvangi. Sömuleiðis þakka ég bæjarstjóra samstarfið og óska honum velfarnaðar.

Bæjarfulltrúarnir Edward Hákon Huijbens, Baldvin Valdemarsson, Sigríður Huld Jónsdóttir, Preben Jón Pétursson, Silja Dögg Baldursdóttir, Gunnar Gíslason og Guðmundur Baldvin Guðmundsson kvöddu sér hljóðs og þökkuðu forseta, bæjarfulltrúum, nefndarmönnum, bæjarstjóra, starfsmönnum og íbúum samstarfið á kjörtímabilinu og óskuðu þeim allra heilla.


Eftirtaldar fundargerðir voru lagðar fram til kynningar:

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa 9. og 17. maí 2018
Bæjarráð 17. maí 2018
Fræðsluráð 7. maí 2018
Skipulagsráð 18. maí 2018
Stjórn Akureyrarstofu 16. maí 2018
Velferðarráð 16. maí 2018

Hægt er að nálgast fundargerðirnar á heimasíðu Akureyrarbæjar / www.akureyri.is /
Stjórnkerfið / Fundargerðir

Fundi slitið - kl. 16:37.