Bæjarráð

3287. fundur 12. september 2011 kl. 13:00 - 13:10 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Hermann Jón Tómasson
  • Ólafur Jónsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Sigurður Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2012

Málsnúmer 2011070038Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að fjárhagsrömmum ársins 2012.

Bæjarráð samþykkir tillögu að fjárhagsramma fyrir árið 2012.

Bæjarfulltrúar A-lista, B-lista, D-lista, S-lista og V-lista óska bókað:

Við samþykkjum framkomna tillögu um fjárhagsramma fyrir árið 2012, en minnum á að í þriggja ára áætlun er gert ráð fyrir hagræðingarkröfu upp á 200 milljónir króna sem aðeins er mætt að hluta í þessum ramma.

Við munum taka afstöðu til einstakra hagræðingarkrafna og tillagna um breytingar á tekjustofnum í umræðu um gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2012.

Fundi slitið - kl. 13:10.