Atvinnumálanefnd

13. fundur 02. desember 2015 kl. 16:00 - 17:45 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Matthías Rögnvaldsson formaður
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Jóhann Jónsson
  • Elías Gunnar Þorbjörnsson
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Margrét Kristín Helgadóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Albertína Friðbjörg Elíasdóttir verkefnastjóri atvinnumála ritaði fundargerð
Dagskrá
Guðmundur Baldvin Guðmundsson B-lista mætti í forföllum Erlu Bjargar Guðmundsdóttur.

1.Þriggja ára áætlun - atvinnumál

Málsnúmer 2015110231Vakta málsnúmer

Farið var yfir fyrirsjáanleg og möguleg ný eða breytt verkefni innan málaflokksins fyrir þriggja ára áætlun (2017-2019).

2.Brothættar byggðir

Málsnúmer 2015070054Vakta málsnúmer

Rætt var um stöðu mála í Grímsey auk þess sem Helga Íris Ingólfsdóttir nýr verkefnastjóri Brothættra byggða í Hrísey og Grímsey fór yfir stöðu verkefnanna.

3.Verkefni atvinnufulltrúa

Málsnúmer 2015070006Vakta málsnúmer

Verkefnastjóri atvinnumála gerði munnlega grein fyrir verkefnum sínum síðustu vikur, svo sem Brothættar byggðir, frumkvöðlasetur, verkefni í tengslum við Vistorku, kynjaða fjárhagsáætlun og ýmislegt fleira.

Fundi slitið - kl. 17:45.