Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

491. fundur 08. maí 2014 kl. 13:00 - 14:00 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Ólafur Jakobsson
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Austurvegur 44 - nafnabreyting lóðarhafa

Málsnúmer 2012080035Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 2. maí 2014 þar sem Sigmar J. Friðbjörnsson sækir um að gerð verði nafnabreyting á lóðarhafa fyrir lóðina nr. 44 við Austurveg í Hrísey og að Stekkjarvík ehf., kt. 630414-1050, verði skráð nýr lóðarhafi.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

2.Einilundur 2a - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2014050002Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 1. maí 2014 þar sem Sigurður Jónas Baldursson sækir um leyfi fyrir gróðurhúsi á lóð nr. 2a við Einilund. Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda í raðhúsinu.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

3.Hafnarstræti 82 - umsókn um að innrétta gistiheimili

Málsnúmer BN110029Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 10. febrúar 2014 þar sem Þröstur Sigurðsson f.h. Gunnars Magnússonar sækir um að breyta starfsemi á 2. hæð úr gistiheimili í gistiskála ásamt minniháttar breytingum á húsi nr. 82 við Hafnarstræti. Meðfylgjandi er teikning eftir Þröst Sigurðsson.
Innkomnar teikningar 10. maí 2014. Meðfylgjandi er greinargerð um undanþágu frá gr. 6.1.5. í byggingarreglugerð.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

4.Neðri-Sandvík Grímsey - umsókn um byggingarleyfi f. sundlaug

Málsnúmer 2012121100Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 11. desember 2012, þar sem Fasteignir Akureyrarbæjar, kt. 710501-2380, sækja um byggingarleyfi vegna endurbyggingar þaks á sundlauginni í Grímsey. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson.
Innkomnar teikningar 2. maí 2014.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

5.Sómatún 29 (áður 33-35) - umsókn um lóð

Málsnúmer 2012020011Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 2. maí 2014 þar sem Sverrir Gestsson sækir um endurúthlutun á lóðinni nr. 29 við Sómatún.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

6.Eyrarlandstún, SAk - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2014050020Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 2. maí 2014 þar sem Fanney Hauksdóttir sækir f.h. Sjúkrahússins á Akureyri, kt. 580269-2229, um leyfi til breytinga á suðurhluta tengibyggingar SAk. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur og gátlisti.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

7.Hafnarstræti 18b - eignaskiptayfirlýsing

Málsnúmer 2014040214Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 28. apríl 2014 þar sem Þröstur Sigurðsson f.h. Sigríðar Öldu Ásmundsdóttur og Guðmundar Friðfinnssonar, eign 0101, Ingva Ómars Meldal, eign 0102, Frosta L Meldal og Svanhildar Sigtryggsdóttur, eign 0201, óskar eftir áritun byggingarfulltrúa á meðfylgjandi teikningar eftir Þröst Sigurðsson sem nota á við gerð eignaskiptayfirlýsingar.
Innkomnar teikningar 6. maí 2014.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

8.Aðalstræti 5 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2014040158Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 22. apríl 2014 þar sem Haraldur S. Árnason sækir f.h. Sigfríðar Ingólfsdóttur og Ólafs Stefánssonar um breytingu á þaki við Aðalstræti 5. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason. Innkomnar teikningar 7. maí 2014.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 14:00.