Sómatún 33-35 - umsókn um lóð

Málsnúmer 2012020011

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 132. fundur - 15.02.2012

Erindi dagsett 1. febrúar 2012 þar sem Sverrir Gestsson og Hrefna Óladóttir sækja um lóð nr. 33-35 við Sómatún. Meðfylgjandi er staðfesting á greiðslugetu frá Íslandsbanka og umsókn um breytingu á deiliskipulagi.

Skipulagsnefnd samþykkir erindið. Deiliskipulagsskilmálar ásamt almennum byggingarskilmálum gilda.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 489. fundur - 16.04.2014

Sverri Gestssyni og Hrefnu Óladóttur var veitt lóðin nr. 29 við Sómatún 15. febrúar 2012. Framkvæmdafrestur var til 27. maí 2013.

Skipulagsstjóri tilkynnir hér með að frestur til að hefja framkvæmdir er liðinn og mun lóðin verða auglýst að nýju.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 491. fundur - 08.05.2014

Erindi dagsett 2. maí 2014 þar sem Sverrir Gestsson sækir um endurúthlutun á lóðinni nr. 29 við Sómatún.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 497. fundur - 19.06.2014

Erindi dagsett 16. júní 2014 þar sem Sverrir Gestsson fellur frá umsókn sinni um lóðina Sómatún 29 og óskar eftir að greidd gatnagerðargjöld verði lögð inn á reikning sinn nr. 566-26-230.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið og felur fjárreiðudeild að endurgreiða gatnagerðargjöldin.