Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

458. fundur 28. ágúst 2013 kl. 13:00 - 13:40 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Leifur Þorsteinsson
  • Ólafur Jakobsson
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Geislagata 5 - afhending teikninga af húsnæði bankans

Málsnúmer 2013060228Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 11. júní 2013 frá Sigurjóni Pálssyni og Þóru M. Hjaltested f.h. Arionbanka, kt. 581008-0150, þar sem þau fara fram á að uppdrættir af húsnæði bankans að Geislagötu 5, Akureyri, verði ekki afhentir þriðja aðila sé þess óskað.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

2.Austursíða 2 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2013080180Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 22. ágúst 2013 þar sem Ragnar Auðunn Birgisson f.h. Reita I ehf., kt. 510907-0940, sækir um leyfi fyrir nýrri vöru- og gönguhurð ásamt breyttu fyrirkomulagi á lóð við Austursíðu 2. Meðfylgjandi eru gátlisti og teikningar eftir Ragnar Auðunn Birgisson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

3.Brekkugata 1b - umsókn um breytingar innanhúss á 1. hæð

Málsnúmer 2013080149Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 19. ágúst 2013 þar sem Ágúst Hafsteinsson f.h. Líkama og lífstíls ehf., kt. 430605-1190, sækir um leyfi fyrir breytingum innanhúss á húsi nr. 1b við Brekkugötu. Meðfylgjandi eru gátlisti og teikning eftir Ágúst Hafsteinsson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

 

4.Melasíða 4b - umsókn um verönd

Málsnúmer 2013060236Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 8. ágúst 2013 þar sem Ragnheiður Harðardóttir sækir um að stækka verönd við Melasíðu 4b. Meðfylgjandi eru teikningar og samþykki meðeigenda.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

5.Oddeyrargata 12 - framkvæmdir á lóð

Málsnúmer 2013080200Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 26. ágúst 2013 þar sem Rakel Dísella Magnúsdóttir sækir um leyfi fyrir breytingum á lóð við hús nr. 12 við Oddeyrargötu. Meðfylgjandi er teikning.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 13:40.