Melasíða 4b - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2013060236

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 449. fundur - 26.06.2013

Erindi dagsett 24. júní 2013 þar sem Ragnheiður Harðardóttir sækir um breytingar á húsi nr. 4b við Melasíðu. Meðfylgjandi eru teikningar.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið fyrir sitt leyti en bendir á að samþykki húsfélagsins þarf að liggja fyrir áður en farið er í framkvæmdir.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 458. fundur - 28.08.2013

Erindi dagsett 8. ágúst 2013 þar sem Ragnheiður Harðardóttir sækir um að stækka verönd við Melasíðu 4b. Meðfylgjandi eru teikningar og samþykki meðeigenda.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.