Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

949. fundur 11. janúar 2024 kl. 13:00 - 13:30 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Hjálmar Andrés Jónsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Hjálmar Árnason fundarritari
Fundargerð ritaði: Steinmar H. Rögnvaldsson Byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Austursíða 6 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023040222Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 13. október 2023 þar sem Baldur Ólafur Svavarsson fyrir hönd Norðurtorgs ehf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum á lóð nr. 6 við Austursíðu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Baldur Ólaf Svavarsson. Innkomnar nýjar teikningar 9. janúar 2024.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Gránufélagsgata 51 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021041271Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 30. nóvember 2023 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd VN Fasteigna ehf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir húsi á lóð nr. 51 við Gránufélagsgötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason. Innkomnar nýjar teikningar 9. janúar 2024.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

3.Jaðar - Golfklúbbur Akureyrar - æfingahús - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023110697Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 17. nóvember 2023 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Golfklúbbs Akureyrar sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir geymslu og æfingahúsi að Jaðri á Akureyri. Innkomnar nýjar teikningar 6. janúar 2024.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

4.Stekkjargerði 16 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2024010534Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 10. janúar 2024 þar sem Valbjörn Ægir Vilhjálmsson fyrir hönd Elmars Dan Sigþórssonar sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir breytingum á innra skipulagi og útliti húss. Einnig er sótt um að fá að byggja bílgeymslu, bílskýli og lóðarveggi á lóð nr. 16 við Stekkjargerði. Innkomnar teikningar eftir Valbjörn Ægi Vilhjálmsson.
Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindið.

Fundi slitið - kl. 13:30.