Stekkjargerði 16 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2024010534

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 949. fundur - 11.01.2024

Erindi dagsett 10. janúar 2024 þar sem Valbjörn Ægir Vilhjálmsson fyrir hönd Elmars Dan Sigþórssonar sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir breytingum á innra skipulagi og útliti húss. Einnig er sótt um að fá að byggja bílgeymslu, bílskýli og lóðarveggi á lóð nr. 16 við Stekkjargerði. Innkomnar teikningar eftir Valbjörn Ægi Vilhjálmsson.
Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindið.