Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

936. fundur 05. október 2023 kl. 13:00 - 13:35 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Hjálmar Árnason fundarritari
  • Hjálmar Andrés Jónsson verkefnastjóri byggingarmála
Fundargerð ritaði: Steinmar H. Rögnvaldsson Byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Strandgata 11 - umsókn um breytta notkun húsnæðis

Málsnúmer 2023090278Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 6. september 2023 þar sem Ketill Árni Ketilsson sækir um breytta notkun íbúðar 201 úr íbúðareign í atvinnuhúsnæði í húsi nr. 11 við Strandgötu á Akureyri.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Eyrarlandstún SAk C álma, 1. hæð - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild

Málsnúmer 2023091377Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 27. september 2023 þar sem Fanney Hauksdóttir fyrir hönd Sjúkrahússins á Akureyri við Eyrarlandstún sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir breytingum á myndgreinardeild. Innkomnar teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

3.Engimýri 10 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum

Málsnúmer 2022060307Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 1. október 2023 þar sem Þórir Guðmundsson fyrir hönd Karls Halldórs Vinther Reynissonar sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum í kjallara í húsi nr. 10 við Engimýri. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Þóri Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

4.Gleráreyrar 1 - rými 17, Vogue - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild

Málsnúmer 2023090044Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 2. október 2023 þar sem Svava Björk Bragadóttir fyrir hönd Eikar fasteignafélags hf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir rými 17 á Glerártorgi, í húsi nr. 1 við Gleráreyrar. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Svövu Björk Bragadóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

5.Gleráreyrar 1 - rými 25, Gina Tricot - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild

Málsnúmer 2023100037Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 2. október 2023 þar sem Svava Björk Bragadóttir fyrir hönd Eikar fasteignafélags hf. sækir um byggingaráform og byggingarheimild vegna breytinga á rými 25 á Glerártorgi, hús nr. 1 við Gleráreyrar, fyrirhugað er að innrétta verslun Ginu Tricot. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Svövu Björk Bragadóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

6.Glerárgata 28 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss

Málsnúmer 2022100694Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 3. október 2023 þar sem Valbjörn Ægir Vilhjálmsson fyrir hönd Þulu ehf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum 2. hæðar í húsi nr. 28 við Glerárgötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valbjörn Ægi Vilhjálmsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 13:35.