Gleráreyrar 1 - rými 25, Gina Tricot - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild

Málsnúmer 2023100037

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 936. fundur - 05.10.2023

Erindi dagsett 2. október 2023 þar sem Svava Björk Bragadóttir fyrir hönd Eikar fasteignafélags hf. sækir um byggingaráform og byggingarheimild vegna breytinga á rými 25 á Glerártorgi, hús nr. 1 við Gleráreyrar, fyrirhugað er að innrétta verslun Ginu Tricot. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Svövu Björk Bragadóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.