Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

923. fundur 06. júlí 2023 kl. 13:00 - 14:20 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eyrún Halla Eyjólfsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Eyrún Halla Eyjólfsdóttir fulltrúi skipulags- og byggingarmála
Dagskrá

1.Hafnarstræti 34 - umsókn um byggingarleyfi fyrir 4 íbúða húsi

Málsnúmer 2021023171Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 29. júní 2023 þar sem Þorgeir Jónsson fyrir hönd Höfða fasteignafélags ehf. sækir um færslu um 2 metra til vesturs á húsi nr. 34 við Hafnarstræti. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Þorgeir Jónsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Lyngholt 9 - umsókn um byggingarleyfi fyrir bílgeymslu

Málsnúmer 2022050698Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 4. júlí 2023 þar sem Kári Magnússon sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir einbýlishúsi á lóð nr. 9 við Lyngholt. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Kára Magnússon.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

3.Oddeyrarbót 1 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023061408Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 26. júní 2023 þar sem Hugrún Þorsteinsdóttir fyrir hönd Keli Sea Tours sækir um byggingaráform og byggingarleyfi á lóð nr. 1 við Oddeyrarbót. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Hugrúnu Þorsteinsdóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

4.Miðhúsabraut 1 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild fyrir fjarskiptamastri

Málsnúmer 2023061606Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 28. júní 2023 þar sem Sigurður Lúðvík Stefánsson fyrir hönd Akureyrarbæjar sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir fjarskiptaloftneti að Miðhúsabraut 1. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Sigurð Lúðvík Stefánsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

5.Kringlumýri 1 - umsókn um úrtak úr kantsteini

Málsnúmer 2023060539Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 12.júní 2023 þar sem Sigmundur Guðmundsson sækir um úrtak á kantsteini við Kringluymýri 1. Meðfylgjandi er afstöðumynd og samþyki eigenda.
Byggingarfulltrúi samþykkir bílastæði með 4 metra úrtaki fyrir íbúð 001 og 7 metra úrtaki fyrir íbúð 101 í kantstein með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein og þeim skilyrðum sem þar koma fram, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf. Í vinnureglunum er kveðið á um heimild umhverfis- og mannvirkjasviðs til gjaldtöku vegna vinnu við úrtakið.

6.Holtagata 3 - umsókn um bílastæði

Málsnúmer 2023061115Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 20 júní 2023 þar sem Erlingur Kristjánsson sækir um bílastæði / úrtak úr kantsteini við hús nr. 3 við Holtagötu. Meðfylgjandi er afstöðumynd.
Byggingarfulltrúi samþykkir úrtak fyrir bílastæði samkvæmt meðfylgjandi teikningum með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein og þeim skilyrðum sem þar koma fram, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf. Í vinnureglunum er kveðið á um heimild umhverfis- og mannvirkjasviðs til gjaldtöku vegna vinnu við úrtakið.

Fundi slitið - kl. 14:20.