Holtagata 3 - umsókn um bílastæði

Málsnúmer 2023061115

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 923. fundur - 06.07.2023

Erindi dagsett 20 júní 2023 þar sem Erlingur Kristjánsson sækir um bílastæði / úrtak úr kantsteini við hús nr. 3 við Holtagötu. Meðfylgjandi er afstöðumynd.
Byggingarfulltrúi samþykkir úrtak fyrir bílastæði samkvæmt meðfylgjandi teikningum með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein og þeim skilyrðum sem þar koma fram, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf. Í vinnureglunum er kveðið á um heimild umhverfis- og mannvirkjasviðs til gjaldtöku vegna vinnu við úrtakið.