Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

889. fundur 10. nóvember 2022 kl. 13:00 - 14:00 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
Fundargerð ritaði: Þórunn Vilmarsdóttir
Dagskrá

1.Langahlíð 28 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022100795Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 21. október 2022 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson fyrir hönd Þórðar Kárasonar sækir um byggingarleyfi fyrir tvíbýlishúsi á lóð nr. 28 við Lönguhlíð. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ragnar Frey Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

2.Tryggvabraut 8 - Krónan - (áður Glerárgata 38) - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021040979Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 8. nóvember 2022 þar sem Guðmundur Oddur Víðisson fyrir hönd Festi fasteigna ehf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir húsi á lóð nr. 8 við Tryggvabraut.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

3.Þórunnarstræti 114 - umsókn um fjölgun í fjórar íbúðir

Málsnúmer 2022042298Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 1. nóvember 2022 þar sem Rögnvaldur Harðarson fyrir hönd Libertas ehf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir húsi nr. 114 við Þórunnarstræti.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 14:00.