Langahlíð 28 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022100795

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 889. fundur - 10.11.2022

Erindi dagsett 21. október 2022 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson fyrir hönd Þórðar Kárasonar sækir um byggingarleyfi fyrir tvíbýlishúsi á lóð nr. 28 við Lönguhlíð. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ragnar Frey Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 892. fundur - 01.12.2022

Erindi dagsett 21. október 2022 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson fyrir hönd Þórðar Kárasonar sækir um byggingarleyfi fyrir tvíbýlishúsi á lóð nr. 28 við Lönguhlíð. Innkomnar nýjar teikningar 28. nóvember 2022.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.