Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

823. fundur 22. júlí 2021 kl. 13:00 - 13:20 Fundarherbergi skipulagssviðs
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Leifur Þorsteinsson fundarritari
Fundargerð ritaði: Leifur Þorsteinsson verkefnastjóri
Dagskrá

1.Goðanes 5 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021031760Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 23. mars 2021 þar sem Haraldur Sigmar Árnason fyrir hönd Akurbergs ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir hús á lóð nr. 5 við Goðanes. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald Sigmar Árnason. Innkomnar nýjar teikningar 14. júlí 2021.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

2.Bakkahlíð 2 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021071151Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 22. júlí 2021 þar sem Valbjörn Ægir Vilhjálmsson fyrir hönd Eggerts Sæmundssonar sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við vesturhlið efri hæðar hússins nr. 2 við Bakkahlíð. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valbjörn Ægi Vilhjálmsson.
Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindið.

Fundi slitið - kl. 13:20.