Goðanes 5 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021031760

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 808. fundur - 30.03.2021

Erindi dagsett 23. mars 2021 þar sem Haraldur Sigmar Árnason fyrir hönd Akurbergs ehf. sækir um byggingarleyfi til að grafa grunn fyrir hús á lóð nr. 5 við Goðanes. Meðfylgjandi er afstöðumynd og snið eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi heimilar jarðvegsskipti í byggingarreit lóðarinnar á grundvelli deiliskipulags.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 823. fundur - 22.07.2021

Erindi dagsett 23. mars 2021 þar sem Haraldur Sigmar Árnason fyrir hönd Akurbergs ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir hús á lóð nr. 5 við Goðanes. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald Sigmar Árnason. Innkomnar nýjar teikningar 14. júlí 2021.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 824. fundur - 29.07.2021

Erindi dagsett 23. mars 2021 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Akurbergs ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir iðnaðarhúsnæði á lóð nr. 5 við Goðanes. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason. Innkomnar nýjar teikningar 28. júlí 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.