Útboð á kaupum á yfirborðsgámum fyrir Akureyrarbæ

Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum í kaup á yfirborðsgámum fyrir Akureyrarbæ.

Fyrirhugaðar eru breytingar á sorphirðu á Akureyri, með innleiðingu á nýju flokkunarkerfi sem taka skal gildi sumarið 2024.

Útboðsgögn verða afhent rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar frá og með mánudeginum 18. mars 2024.

Vinsamlegast athugið að nauðsynlegt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum þess sem kemur til með að undirrita tilboðið rafrænt fyrir hönd fyrirtækisins, ekki er hægt að notast við Íslykil og ekki á að velja umboð fyrir fyrirtæki í innskráningunni heldur persónuna sjálfa.

Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar eigi síðar en kl. 11:00 mánudaginn 15. apríl 2024.

Kaupandi áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.