Truflun á umferð um Þingvalla- og Þórunnarstræti

Þriðjudaginn 15. ágúst og næstu daga á eftir verður unnið að fræsingu á malbiki, annars vegar á vestari akrein Þórunnarstrætis frá Byggðavegi að Hamarstíg og hins vegar á Þingvallastræti frá Byggðavegi og yfir Mýrarveg, sjá meðfylgjandi myndir.

Meðan á framkvæmdum stendur verða tafir á umferð um þessar götur og einhver röskun á ferðum strætisvagna, leiðum 1, 5 og 6. Búast má við hvössum brúnum eftir fræsingu.

Leið 1 hjá strætó mun aka um Byggðaveg og Hamarstíg meðan á malbikun stendur en leiðir 5 og 6 aka Hrafnagilsstræti og Mýrarveg.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan