Stóri hjóladagurinn í Kjarnaskógi á laugardaginn

Mynd: Hjólreiðafélag Akureyrar.
Mynd: Hjólreiðafélag Akureyrar.

Á laugardaginn kemur hefst evrópsk samgönguvika um allt land. Að því tilefni verður Stóri hjóladagurinn haldinn í Kjarnaskógi í samstarfi Akureyrarbæjar og Hjólreiðafélags Akureyrar.

Viðburðurinn hefst klukkan 14 og eru gestir hvattir til að koma hjólandi í skóginn. Gera má ráð fyrir að það taki um 20-30 mínútur fyrir miðlungsvant hjólreiðafólk að hjóla í Kjarnaskóg frá Ráðhústorgi svo dæmi sé tekið.

Hist verður við leikvöllinn sunnan við strandblakvellina, völundarhúsið og ærslabelginn og þaðan verður hjólað saman um þetta ævintýrasvæði með fólk frá hjólreiðafélaginu í broddi fylkingar. Þessi hjólatúr hentar fólki á öllum aldri.

Að hjólafjöri loknu verður boðið upp á grillaðar pylsur og drykki meðan birgðir endast.

Sjáumst hress í Kjarnaskógi á laugardaginn.

Viðburðurinn á Facebook - ætlar þú að mæta?


Hist verður við leikvöllinn sunnan við strandblakvellina, völundarhúsið og ærslabelginn. Þar sem rauði punkturinn er.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan