Lundarsel og Stefanía hljóta jafnréttisviðurkenningar

Að lokinni afhendingu. Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs Akureyrarbæjar, Helga María…
Að lokinni afhendingu. Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs Akureyrarbæjar, Helga María, Stefanía Sigurdís og Anna Hildur Guðmundsdóttir formaður frístundaráðs. Mynd: Ragnar Hólm.

Leikskólinn Lundarsel og Stefanía Sigurdís Jóhönnudóttir hlutu í gær jafnréttisviðurkenningar Akureyrarbæjar.

Frístundaráð Akureyrarbæjar veitti þriðja árið í röð sérstakar viðurkenningar vegna jafnréttismála. Viðurkenningarnar voru veittar við hátíðlega athöfn fyrir utan Hlíð, sem hluti af fjölbreyttri og hátíðlegri dagskrá Þjóðhátíðardagsins á Akureyri.

Viðurkenningar eru veittar stofnun, fyrirtæki, nefnd eða ráði Akureyrarbæjar, einstaklingi eða félagi sem hefur að mati ráðsins staðið sig best við framgang jafnréttismála á Akureyri.

Að þessu sinni ákvað frístundaráð að veita viðurkenningar í tveimur flokkum, til stofnunar annars vegar og einstaklings hins vegar.

Leikskólinn Lundarsel hefur unnið markvisst að kynjajafnrétti í sínu starfi sl. 10 – 12 ár og gegnir sérstakt jafnréttisráð mikilvægu hlutverki í skólanum. Stefna Lundarsels er að allir séu jafnir, kyn á aldrei að hamla, hefta eða loka á óskir. Kynjum er ekki stíað í sundur með þvingunum til að komast ofan í hefðbundinn kynjakassa heldur er börnunum bent á hvað þau eiga sameiginlegt sem einstaklingar. Sem dæmi má nefna að strákar fá að kynna sér hársnyrtiiðn og sjúkraliðabraut í heimsókn sinni til VMA og að sama skapi kynna stúlkur sér starfsemi námsbrauta þar sem karlar hafa verið í meirihluta eins og raf- og málmiðnabraut.

Helga María Þórarinsdóttir tók við viðurkenningunni en hún hefur leitt jafnréttisstarfið á Lundarseli með miklum myndarbrag.

Í flokki einstaklinga hlaut Stefanía Sigurdís Jóhönnudóttir hvatningarverðlaun frístundaráðs. Hún sat í stjórn Femínistafélags MA og sinnti þeim störfum af krafti meðal annars með því að standa fyrir jafnréttisviku og fjölda annarra viðburða.

Stefanía hefur tekið þátt í ráðstefnum um jafnrétti og leitt verkefni sem snúast um að afmá neikvæðar staðalímyndir. Hún hefur sýnt mikla þrautseigju í störfum sínum, haldið áfram þótt á móti hafi blásið og sinnt jafnréttismálum af einlægni og áhuga til að læra sífellt meira. Hún er ötul baráttukona, óhrædd við að koma skoðunum sínum á framfæri og leggur mikið upp úr samtali og fræðslu yngri kynslóða.

Innilega til hamingju!

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan