17. júní á Akureyri með öðru sniði

Blómabíllinn eins og hann leit út í fyrra.
Blómabíllinn eins og hann leit út í fyrra.

Hátíðarhöld á þjóðhátíðardaginn verða með nokkuð öðru sniði en ætlað hafði verið því vegna fjöldatakmarkana, sem nú miðast við aðeins 300 manns, varð að aflýsa fjölskylduskemmtun á MA-túninu vestan Lystigarðsins en þar á móti kemur að dagskráin í Lystigarðinum lengist nokkuð með fleiri uppákomum. Til að fyrirbyggja of mikla hópamyndun í garðinum verður samkomuflötinni við skrúðhúsið skipt í tvö hólf frá vestri til austurs.

Í fyrra var sú hefð að blómabíll keyri um bæinn endurvakinn og hann verður á ferðinni undir hádegi með þjóðhátíðarkveðjum til bæjarbúa. Klukkan 12.45 leggur skrúðganga Lúðrasveitar Akureyrar og Skátafélagsins Klakks af stað frá Hamarskotstúni, suður Þórunnarstrætið og sem leið liggur suður að Lystigarði.

Þar hefst síðan hátíðardagskrá um kl. 13.15. Lúðrasveit Akureyrar undir stjórn Sóleyjar Bjarkar Einarsdóttur leikur, skátar hylla fánann og séra Guðrún Eggerts Þórudóttir flytur hugvekju. Sönghópur skipaður fulltrúum kóra á Eyjafjarðarsvæðinu syngur þjóðsönginn og félagar úr Yngri og Eldri barnakór Akureyrarkirkju syngja Sálminn um fuglinn eftir Olgu Guðrúnu Árnadóttur. Stjórnandi er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir. Fjallkonan Inda Björk Gunnarsdóttur flytur ávarp og Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður bæjarráðs segir nokkur orð.

Því næst munu nýstúdentar marsera um garðinn, Ronja ræningjadóttir stígur á stokk og loks verður boðið upp á tónleika með Tríói Akureyrar.

Klukkan 15.00 býður áhöfnin á eikarbátnum Húna II til siglingar um Pollinn en hámarksfjöldi gesta um borð verður 70 manns. Fyrstur kemur, fyrstur fær.

Vegna fjöldatakmarkana verður svæðinu við garðskálann í Lystigarðinum skipt í tvennt og hámarksfjöldi í hvoru hólfi er 300 manns. Virðum fjarlægðarmörk og munum að öll erum við almannavarnir.

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan