Útboð á utanhússmálun og múrviðgerðum

Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum í utanhússmálun og múrviðgerðir á eftirfarandi eignum, um er að ræða aðskilin útboð:

  • Oddeyrarskóli
  • Eiðsvallagata 34
  • Smárahlíð 1 og 3
  • Glerárlaug
  • Slökkvistöð Akureyrar

Útboðsgögn verða afhent rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar frá og með þriðjudeginum 21. febrúar 2023.

Vinsamlegast athugið að nauðsynlegt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum þess sem kemur til með að undirrita tilboðið rafrænt fyrir hönd fyrirtækisins, ekki er hægt að notast við Íslykil.

Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar eigi síðar en 16. mars 2023 kl. 13:00 og verða tilboð opnuð á sama tíma að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Verkkaupi áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.