Útboð á endurbótum á kirkjutröppum við Akureyrarkirkju

Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar og Reginn atvinnuhúsnæði ehf. óska eftir tilboðum í endurbætur á kirkjutröppum og umhverfi þeirra. Um er að ræða endurnýjun á kirkjutröppunum, lagfæringar á þaki undir neðri hluta trappna, uppgröft og fyllingar ásamt frárennslis–, snjóbræðslu- og raflögnum. Smíði og uppsetning grindverks og jarðvegsfrágangur með þökulögn o.fl.

Framkvæmdatími er frá 27.apríl til 15. Október 2023

Útboðsgögn verða afhent rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar frá og með miðvikudeginum 5. apríl 2023

Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar eigi síðar en kl. 11.00 miðvikudaginn 26. apríl 2023 og verða tilboð opnuð á sama tíma að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.