Velferðarráð

1379. fundur 10. janúar 2024 kl. 14:00 - 14:53 Glerárgata 26, kálfur, fundarherbergi
Nefndarmenn
  • Hulda Elma Eysteinsdóttir formaður
  • Lára Halldóra Eiríksdóttir
  • Hólmgeir Karlsson
  • Guðbjörg Anna Björnsdóttir
  • Snæbjörn Ómar Guðjónsson
  • Elsa María Guðmundsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Tinna Guðmundsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðrún Ólafía Sigurðardóttir sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri velferðarsviðs
  • Kristín Birna Kristjánsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristín Birna Kristjánsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Fjárhagserindi - áfrýjanir 2024

Málsnúmer 2024010174Vakta málsnúmer

Lögð fram áfrýjun í fjárhagsaðstoð.

Zane Brikovska félagsráðgjafi sat fundinn undir þessum lið.
Fjárhagserindi og afgreiðsla þeirra eru færð í trúnaðarbók velferðarráðs.

2.Reglur um akstursþjónustu Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2023110731Vakta málsnúmer

Lagðar fram til samþykktar reglur um akstursþjónustu Akureyrarbæjar. Reglunum var vísað til umsagnar til samráðshóps um málefni fatlaðs fólks, ungmennaráðs og öldungaráðs. Samráðshópurinn gerir ekki athugasemdir við endurskoðaðar reglur um akstursþjónustu. Samráðshópurinn leggur áherslu á að akstursþjónustan geti veitt þá þjónustu sem henni er ætlað að veita og til að svo geti orðið verði fleiri bílum bætt við í þjónustuna. Einnig sé mikilvægt að skoða þá útfærslu að hægt sé að nota ferðakort allan sólarhringinn sem myndi þá minnka álag á ferlibílana.

Í umsögn sinni leggur ungmennaráð Akureyrar til að þær fjölskyldur sem hafa hlotið bifreiðastyrk verði ekki algjörlega skertar af réttindum sínum heldur í stað þess að hafa 80 ferðir á mánuði að þeim verði fækkað í 10-20 sem hægt væri að nýta ef eitthvað kæmi upp á. Einnig vill ungmennaráð leggja til að barnabílstólar séu ekki á ábyrgð foreldra heldur verði til staðar í bílnum ef þess er þörf. Öldungaráð gerir ekki athugasemdir við reglurnar.

Velferðarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar reglunum áfram til bæjarstjórnar.

3.Hækkun útsvarsálagningar vegna fjármögnunar þjónustu við fatlað fólk

Málsnúmer 2023121135Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga um breytingu á fjármögnun þjónustu við fatlað fólk.
Velferðarráð fagnar því samkomulagi sem náðst hefur um fjármögnun málaflokks fatlaðra sem er skref í rétta átt.

Fundi slitið - kl. 14:53.