Stjórn Akureyrarstofu

236. fundur 14. september 2017 kl. 16:15 - 18:00 Fundarherbergi á 3. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Unnar Jónsson formaður
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Hildur Friðriksdóttir
  • Eva Dögg Fjölnisdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Kristinn Jakob Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs
  • Þórgnýr Dýrfjörð deildarstjóri Akureyrarstofu ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun Akureyrarstofu 2018

Málsnúmer 2017060006Vakta málsnúmer

Til umræðu fjárhags- og starfsáætlun stjórnar Akureyrarstofu fyrir árið 2018.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir tillögur forstöðumanna að gjaldskrárhækkunum og vísar þeim til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.

Jafnframt samþykkir stjórnin framlagða starfs- og fjárhagsáætlun fyrir 2018 með fyrirvara um að fjárhagsáætlun Listasafnsins verði tekin til nánari skoðunar.

Stjórn Akureyrarstofu samþykkir jafnframt að óska eftir auknu fjármagni í eftirtalin verkefni:

Atvinnu- ferða- og kynningarmál:

- Aukið markaðsátak fyrir Akureyri á íbúamarkaði: kr. 11.000.000.

- Íbúakort, útfærsla og framkvæmd: kr. 5.000.000.

- Unnið að mörkun/branding fyrir Akureyri og í framhaldi nýtt kynningarefni: kr. 6.000.000.

Menningarmál:

- Mótun nýrrar menningarstefnu og safnastefnu: kr. 2.300.000.

- Barnamenningarhátíð: kr. 3.000.000.

- Aukið starfsmannahald á Héraðsskjalasafninu (50% stöðugildi): kr. 3.500.000.

- Verkefnið; "Greiðum listamönnum" sett af stað: kr. 1.500.000.

- Hækkun á fjárheimildum v/Akureyrarvöku: kr. 2.000.000.

Fundi slitið - kl. 18:00.