Skólanefnd

12. fundur 23. júní 2010 kl. 13:30 - 15:40 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Sigurveig S Bergsteinsdóttir formaður
  • Preben Jón Pétursson
  • Helgi Vilberg Hermannsson
  • Logi Már Einarsson
  • Þorvaldur Sigurðsson
Starfsmenn
  • Gunnar Gíslason
  • Björg Sigurvinsdóttir
Dagskrá
Formaður bauð nefndarmenn velkomna til 1. fundar.

Bæjarstjórn hefur á fundi sínum 15. júní 2010 kosið aðal- og varamenn í skólanefnd til fjögurra ára:
Aðalmenn:
Sigurveig Bergsteinsdóttir
Preben Jón Pétursson
Herdís R. Arnórsdóttir
Helgi Vilberg Hermannsson
Logi Már Einarsson

Varamenn:
Tryggvi Þór Gunnarsson
Silja Dögg Baldursdóttir
Þorvaldur Sigurðsson
Gísli Aðalsteinsson
Sædís Gunnarsdóttir

1.Handbók skólanefndar - 2010-2014

Málsnúmer 2010060093Vakta málsnúmer

Á fundinum fengu nefndarmenn afhenta handbók skólanefndar, sem inniheldur þau grunngögn sem nauðsynleg eru fyrir nefndarmenn.

Lagt til að fundir verði haldnir að jafnaði fyrsta og þriðja hvern mánudag í mánuði kl. 14.00. Fundarboð verður sent út rafrænt til aðal- og varamanna.

2.Innritun í leikskóla 2010

Málsnúmer 2010040040Vakta málsnúmer

Björg Sigurvinsdóttir leikskólafulltrúi, gerði grein fyrir stöðunni í innritun í leikskóla eins og hún lítur út núna. Ljóst er að enn vantar rými fyrir ríflega 30 börn svo hægt sé að mæta þörf fyrir börn að 18 mánaða aldri. Ástæðan fyrir þessu er að ríflega 50 börn á leikskólaaldri hafa flutt til bæjarins á fyrri hluta þessa árs. Þetta eru eldri börn sem ganga því fyrir þeim yngri.

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 15:40.