Öldungaráð

37. fundur 17. apríl 2024 kl. 13:00 - 14:30 Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Hjálmar Pálsson formaður
  • Hildur Brynjarsdóttir
  • Brynjólfur Ingvarsson
  • Hallgrímur Gíslason fulltrúi ebak
  • Gunnar Gíslason fulltrúi ebak
  • Þorgerður Jóna Þorgilsdóttir fulltrúi ebak
  • Halla Björk Reynisdóttir forseti bæjarstjórnar
  • Hulda Elma Eysteinsdóttir bæjarfulltrúi
  • Hilda Jana Gísladóttir bæjarfulltrúi
  • Jana Salóme I. Jósepsdóttir bæjarfulltrúi
  • Hlynur Jóhannsson bæjarfulltrúi
  • Heimir Örn Árnason bæjarfulltrúi
  • Lára Halldóra Eiríksdóttir bæjarfulltrúi
  • Jón Hjaltason bæjarfulltrúi
  • Sunna Hlín Jóhannesdóttir bæjarfulltrúi
Starfsmenn
  • Hulda Sif Hermannsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra
  • Bjarki Ármann Oddsson forstöðumaður skrifstofu ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Bjarki Ármann Oddsson Forstöðumaður skrifstofu fræðslu- og lýðheilsusviðs
Dagskrá
Eva Björg Guðmundsdóttir fulltrúi HSN boðaði forföll sem og varamaður hennar.
Gunnar Gíslason fulltrúi EBAK sat fundinn í fjarveru Úlfhildar Rögnvaldsdóttur.

1.Niðurstöður þjónustukönnunar Gallup 2023

Málsnúmer 2023100247Vakta málsnúmer

Gunnar Gíslason fulltrúi EBAK í öldungaráði fjallaði um niðurstöður Gallup könnunar á þjónustu sveitarfélaga með áherslu á Akureyri og eldri borgara. Þar á meðal um húsnæðismál og væntanlega húsnæðiskönnun á vegum Félags eldri borgara.

2.Stuðningsþjónusta

Málsnúmer 2023040737Vakta málsnúmer

Þorgerður Jóna Þorgilsdóttir fulltrúi EBAK í öldungaráði ræddi um stuðningsþjónustu við eldri borgara.

3.Leiðakerfi strætisvagna, ferlibílar og frístundaakstur

Málsnúmer 2024010789Vakta málsnúmer

Hallgrímur Gíslason fulltrúi EBAK í öldungaráði og varaformaður ráðsins ræddi um beiðni stjórnar Félags eldri borgara á Akureyri og öldungaráðs Akureyrarbæjar um að koma á fót tilraunaverkefni með frístundastrætó milli Birtu og Sölku.

4.Samanburður á gjaldskrá milli sveitarfélaga

Málsnúmer 2024030750Vakta málsnúmer

Hallgrímur Gíslason fulltrúi EBAK í öldungaráði og varaformaður ráðsins ræddi um samanburð á gjaldskrá milli sveitarfélaga í málefnum er tengist eldri borgurum.

Fundi slitið - kl. 14:30.