Öldungaráð

36. fundur 19. mars 2024 kl. 13:00 - 14:30 Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Hjálmar Pálsson formaður
  • Hildur Brynjarsdóttir
  • Brynjólfur Ingvarsson
  • Hallgrímur Gíslason fulltrúi ebak
  • Úlfhildur Rögnvaldsdóttir fulltrúi ebak
  • Sigurður Kjartan Harðarson fulltrúi ebak
  • Eva Björg Guðmundsdóttir fulltrúi hsn
Starfsmenn
  • Bjarki Ármann Oddsson rekstrarstjóri ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Bjarki Ármann Oddsson forstöðumaður skrifstofu
Dagskrá
Sigurður Kjartan Harðarson fulltrúi EBAK sat fundinn í stað Þorgerðar Jónu Þorgilsdóttur.

1.Virk efri ár

Málsnúmer 2022081092Vakta málsnúmer

Héðinn Svarfdal Björnsson verkefnastjóri lýðheilsumála kynnti stöðuna á Virkum efri árum.
Öldungaráð þakkar Héðni fyrir kynninguna.

2.Ársskýrsla öldungaráðs 2023 - 2024

Málsnúmer 2024030749Vakta málsnúmer

Lögð fram ársskýrsla öldungaráðs 2023 - 2024 en hún verður kynnt á aðalfundi Félags eldri borgara á Akureyri þann 20. mars.

3.Frístundaakstur fyrir eldra fólk

Málsnúmer 2024010789Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá stjórn Félags eldri borgara á Akureyri (EBAK) og fulltrúa EBAK í öldungaráði um frístundastrætó milli Birtu og Sölku.
Stjórn Félags eldri borgara á Akureyri (EBAK) og öldungaráð Akureyrarbæjar beina því til bæjaryfirvalda að komið verði á tilraunaverkefni með frístundastrætó milli Birtu og Sölku.

Frístundaferðir af þessu tagi hafa verið í umræðunni hjá EBAK í nokkur ár. Margir komast ekki inn í venjulega fólksflutningabíla (rútur) nema e.t.v. með aðstoð og ekki heldur inn í stærri einkabíla.

Margir fara milli félagsmiðstöðvanna í einkabílum en bílastæði eru mjög takmörkuð á báðum stöðum. Frístundastrætó ætti að fækka þeim ferðum og er í það takt við óskir bæjaryfirvalda um minni umferðarþunga á götunum og hlutfallslega fækkun ökutækja.

Oft þyrfti að hafa aukastrætisvagna á álagstímum og svo hefur frístundastrætó vegna íþróttaæfinga skólafólks verið í umræðunni um nokkra hríð. Þessar ferðir ættu því að bæta nýtingu þeirra vagna.

4.Samanburður á gjaldskrá milli sveitarfélaga

Málsnúmer 2024030750Vakta málsnúmer

Lagður fram til umræðu samanburður milli sveitarfélaga á gjaldskrá tengdri eldra fólki.

5.Öldungaráð - önnur mál

Málsnúmer 2022100342Vakta málsnúmer

Umræður um önnur mál.

Fundi slitið - kl. 14:30.