Þingvallastræti 23 - umsókn um aðstöðu starfsmanna

Málsnúmer BN110009

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 381. fundur - 18.01.2012

Erindi dagsett 9. janúar 2012 þar sem Brynjar Einarsson f.h. Þingvangs ehf., kr. 671106-0750, óskar eftir að fá pláss í horni á lóð tjaldsvæðisins, næst Þórunnarstræti, vegna aðstöðu til bráðabirgða (sjá viðhengi). Er það hugsað sem aðstaða fyrir byggingarefni, kaffiaðstaða og skrifstofa byggingarstjóra. Innkomið samþykki Tryggva Marínóssonar f.h. lóðarhafa dagsett 12. janúar 2012.

Skipulagsstjóri samþykkir tímabundið leyfi fyrir vinnuaðstöðu til 15. maí 2012.