Breyting á aðal- og deiliskipulagi Lónsbakka - umsagnarbeiðni

Málsnúmer 2024030392

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 419. fundur - 12.03.2024

Lagðar fram til umsagnar tillögur að breytingu á aðal- og deiliskipulagi Lónsbakka í Hörgársveit. Fela breytingarnar m.a. í sér að gert er ráð fyrir að á svæði milli Lónsvegar og Lónsár verði 5 lóðir fyrir íbúðarhús og 1 fyrir verslun- og þjónustu. Er um að ræða 3 lóðir fyrir fjölbýlishús fyrir á bilinu 6-20 íbúðir og 2 einbýlishúsalóðir.
Skipulagsráð samþykkir að fela skipulagsfulltrúa að útbúa umsögn í samræmi við umræður á fundi.