Frumvarp til laga um um breytingu á ýmsum lögum til að bæta stöðu námsmanna, fæðingarorlof, atvinnuleysistryggingar og námslán, 13. mál

Málsnúmer 2024020126

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3837. fundur - 08.02.2024

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 1. febrúar 2024 frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum til að bæta stöðu námsmanna, fæðingarorlof, atvinnuleysistryggingar og námslán, 13. mál 2024.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 15. febrúar nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/pdf/154/s/0013.pdf