Goðanes 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023101359

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 940. fundur - 01.11.2023

Erindi dagsett 29. október þar sem Rögnvaldur Harðarson fyrir hönd BB byggingar ehf., sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir atvinnuhúsnæði á lóð nr. 3 við Goðanes. Einnig er sótt um hækkun á gólfkóta um 40 cm. Innkomnar teikningar eftir Rögnvald Harðarson
Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindið.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 954. fundur - 15.02.2024

Erindi dagsett 29. október 2023 þar sem Rögnvaldur Harðarson fyrir hönd BB byggingar ehf, sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir atvinnuhúsnæði á lóð nr. 3 við Goðanes. Innkomnar nýjar teikningar 27. janúar 2024 eftir Rögnvald Harðarson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.