Goðanes - beiðni um heimild til lagningar atvinnuökutækis

Málsnúmer 2023090718

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 409. fundur - 27.09.2023

Erindi dagsett 14. september 2023 þar sem Snjólaug Svala Grétarsdóttir f.h. Ekils ehf. sækir um leyfi til að leggja flutningabíl með eftirvagn utan við vegkant sunnan megin í Goðanesi til móts við lóð nr. 8-10.

Skipulagsráð hafnar erindinu.

Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.