Álfaholt 5-7 - umsókn um breytingu á deiliskipulagi

Málsnúmer 2023060448

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 404. fundur - 14.06.2023

Erindi dagsett 8. júní 2023 þar sem Davíð Örn Benediktsson sækir um breytingu á deiliskipulagi fyrir lóð 5-7 við Álfaholt. Sótt er um stækkun á byggingarreit um A) 2,5 m til norðurs og 4,5 m til suðurs og hækkun á nýtingarhlutfalli úr 0,5 í 0,5 - 0,6 eða B) stækkun á byggingarreit um 2,5 m til norðurs og 4,5 m til suðurs og hækkun á nýtingarhlutfalli úr 0,5 í 0,505.

Meðfylgjandi er deiliskipulagsuppdráttur.
Skipulagsráð samþykkir að gerð verði breyting á deiliskipulagi til samræmis við tillögu B. Er breytingin óveruleg skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og ekki er talin þörf á grenndarkynningu sbr. 44. gr. laganna. Er skipulagsfulltrúa falið að sjá um gildistöku breytingarinnar þegar fullnægjandi skipulagsgögn liggja fyrir.

Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.