Týsnes 14 - umsókn um lóð

Málsnúmer 2023060274

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 404. fundur - 14.06.2023

Erindi dagsett 5. júní 2023 þar sem Þríforkur ehf. sækir um lóð nr. 14 við Týsnes.

Meðfylgjandi eru greinargerð um byggingaráform og yfirlýsing viðskiptabanka.
Skipulagsráð samþykkir erindið. Deiliskipulagsskilmálar ásamt almennum byggingarskilmálum gilda.

Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.