Amtsbókasafnið á Akureyri - Opið bókasafn

Málsnúmer 2023051392

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3811. fundur - 01.06.2023

Rætt um verkefnið Opið bókasafn sem snýr að því að auka afgreiðslutíma Amtsbókasafnsins með sjálfsafgreiðslubúnaði. Fyrir liggur styrkveiting vegna verkefnisins að fjárhæð kr. 3.000.000 frá bókasafnsráði.

Sumarliði Helgason sviðsstjóri þjónustu- og skipulagssviðs og Hólmkell Hreinsson amtsbókavörður sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar framhaldi verkefnisins til fjárhagsáætlunar fyrir árið 2024.