Munkaþverárstræti 16 - fyrirspurn varðandi skipulagsmál

Málsnúmer 2023051151

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 404. fundur - 14.06.2023

Erindi dagsett 23. maí 2023 þar sem Angantýr Ómar Ásgeirsson sækir um leyfi fyrir rekstrarleyfisskyldri gististarfsemi á neðri hæð Munkaþverárstrætis 6.
Skipulagsráð gerir ekki athugasemd við að gefið verði út leyfi fyrir rekstrarleyfisskyldri gististarfsemi í íbúðinni ef hún er leigð út í heilu lagi. Með því móti eykst ekki álag á bílastæði í götunni. Er heimildin með fyrirvara um samþykki allra eigenda í húsinu, sbr. ákvæði Aðalskipulags Akureyrar 2018-2030 um rekstrarleyfisskylda gististarfsemi í fjölbýlishúsum.