Drög að reglugerð um málsmeðferð við setningu skipulagsreglna fyrir flugvelli

Málsnúmer 2023051060

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 404. fundur - 14.06.2023

Lögð fram til kynningar drög að reglugerð um málsmeðferð við setningu skipulagsreglna um flugvelli á vegum innviðaráðuneytis.

Með tölvupósti dagsettum 17. maí sl. bauð innviðaráðuneyti sveitarfélögum og öðrum hagsmunaaðilum til samráðs um reglugerðardrögin og var frestur til umsagnar veittur í átta virka daga eða til 31. maí sl.