Gleráreyrar 1 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild

Málsnúmer 2023050292

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 915. fundur - 11.05.2023

Erindi dagsett 4. maí 2023 þar sem Svava Björk Bragadóttir fyrir hönd Eikar fasteignafélags hf. sækir um byggingaráform og byggingarheimild í rými 25 og 26 á Glerártorgi. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Svövu Björk Bragadóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 935. fundur - 28.09.2023

Erindi dagsett 22. september 2023 þar sem Svava Björk Bragadóttir fyrir hönd Eikar fasteignafélags hf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir rými 25 og 26 á Glerártorgi í húsi nr. 1 við Gleráreyrar. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Svövu Björk Bragadóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.